Rigning úti- mála inni

Það mígrignir úti. Himnarnir hafa opnast og náttúran er að springa úr greddu. Túristunum, sem ekki hafa haft við að berja af sér flugurnar síðustu daga, skolar nú hratt út í saurpollinn, eins og fréttastofa Rúv vill kalla Mývatn í dag.

Eins og gefur að skilja er ekki gott að mála með vatnslitum úti í slíku veðri. Mig langaði út að mála í dag. Ég ákvað samt að æfa mig og málaði skissu af mynd sem ég tók á símann í morgun þegar ég fór í Brekku.

Ég held áfram að vinna með það að leiðarljósi að einfalda viðfangsefnið eins og ég get. Bara einn stór pensill og enginn blýantur. No turning back. Bara byrja. Þetta lítur alltaf hræðilega út um miðbikið en ef maður er heppinn nær maður að hnýta þetta saman í endan með smá fiffi.

Það sem mér finnst mest heillandi við svona myndir er hvað fjarlægðin skiptir miklu máli. Þær þurfa fjarlægð og það er gaman að færa sig fjær og nær og spá i þær.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap