Fór til hnykkjara í dag til að fá nýtt tvist í þessa baráttu mína við hnémeiðsli. Leið hálf undarlega þegar ég beið í herbergi sem var einhversstaðar mitt á milli þess að vera skrifsstofa Sigmund Freud og röntgenherbergi.  Pyntingabekkur var á miðju gólfinu. Bekkurinn leit út fyrir að vera gerður til að slíta í sundur fólk með rangar skoðanir. Þetta átti bara eftir að verða undarlegra. Þar sem ég lá á hliðinni á nærbuxunum með karlmann að hrista á mér lappirnar og stinga mig með nálum, ryðst þá ekki inn í herbergið búlgaskur blakþjálfari sem vinnur við að bóna glugga? Svona getur raunveruleikinn verið miklu skrýtnari en skáldskapur.

Annars líður mér vel eftir þennan tíma hjá hnykkjaranum. Margir kalla þetta ekki vísindi og það er yfirleitt lokaúrræði hjá fólki að leita til hnykkjara. Þessi sagði mér, að ef hann gæfi einhverntíman út ævisögu, ætti hún að heita Síðasta hálmstráið. Ég skal myndskreyta og gefa hana út.

Annars leiðist mér mjög hvað raunvísindahrokinn ristir oft djúpt hjá sumu fólki. Þetta gengur reyndar í báðar áttir. Fólk sem hatast út í vísindamenn og hefur aldrei skafið skítinn af baðstofuglugganum til að hleypa sólinni inn er engu skárra. Við verðum að vega og meta það sem við höfum í höndunum án þess að útiloka neitt. Hvernig ætti ég að geta fullyrt að eitthvað sé ekki til? Annars rakst ég á smá viðtal við Freeman Dyson sem er einn frægasti eðlisfræðingur sögunnar. Það var gaman að sjá hann tjá sig um vísindi.

The whole point of science is that most of it is uncertain. That's why science is exciting--because we don't know. Science is all about things we don't understand. The public, of course, imagines science is just a set of facts. But it's not. Science is a process of exploring, which is always partial. We explore, and we find out things that we understand. We find out things we thought we understood were wrong. That's how it makes progress.
Jæja núna er ég kominn langt út fyrir það sem ég ætlaði að gera, þ.e. að skrifa eitthvað fyndið um ferðina til hnykkjara.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap