0

Jæja þá er árið búið!!!! Reyndar kláraðist það 23. janúar en ég ruglaðist eitthvað í talningunni. Ég ætla því að láta þetta vera síðasta póstinn í þessari eins árs seríu. Ég veit ekki hvað tekur við en í aðra röndina langar mig að læra meira, ekki bara af sjálfum mér.

Myndirnar sem ég enda á eru annarsvegar ég og Brynleifur í göngutúr og svo ég að giftast yndislegustu konu í heimi. Ég gerði svokallaðar contour teikningar þar sem ég lyfti aldrei blýantinum. Ég var ánægður með útkomuna en málningarvinnan er ekki alveg jafn góð, sérstaklega ekki gleraugun. Ég kenni pappírnum um það að hluta til (en ekki hvað).

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap