Tekið af wikipedia:
Stefna Framsóknar er ekki frábrugðin stefnum annara flokka, þetta er allt saman eins. Hún endar samt á orðunum: "Framsóknarstefnan setur manninn og velferð hans í öndvegi.". Þetta átti sennilega að vera svona "Framsóknarstefnan setur (Framsóknar)manninn og velferð hans í öndvegi.
Kveðja, Bjarni
Allt frá upphafi hefur Framsóknarflokkurinn verið frjálslyndur umbótaflokkur svo sem uppruni hans og stefnuyfirlýsingar í gegnum tíðina bera með sér. Þetta felur í sér að flokkurinn er fordómalaus um úrlausnir aðsteðjandi vandamála á hverjum tíma. Hann vill beita aðferðum þekkingar og vísinda til að ryðja framþróuninni braut á grundvelli þeirra þjóðfélagslegu gilda sem stefna hans byggist á. Sem umbótaflokkur hefur flokkurinn í starfi sínu lagt höfuðáherslu á að hver kynslóð leitist við að skila þeirri næstu betra þjóðfélagi en hún tók við, betra lífi, fleiri tækifærum og ríkari menningu. Þjóðfélagi þar sem manngildið er metið ofar auðgildi.[7]Manni dettur nú í hug árið 2001 þegar Sif Friðleifs hundsaði úrskurð Skipulagsstofnunar um að synja bæri leyfi um byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Mér dettur nú reyndar svo margt annað í hug. "Hver kynslóð skilar þeirri næstu bla bla bla..." Hvað er eitt hrun?

Ummæli