B(j)örn í dag

Börn í dag hanga mikið í tölvum. Börn í dag eru mörg hver of þung og hreyfa sig lítið. Börn í dag verða oft hvummsa þegar maður bregður fyrir sig gömlum góðum íslenskum orðum. Börn í dag eru ekki gallalaus.

Börn í dag eru hinsvegar að svo mörgu leiti mikið heilbrigðari heldur en við vorum. Þau reykja ekki eða drekka, ég er nokkuð viss um að þau stela minna, þau eru opin og yfirleitt nokkuð lífleg. Ég held líka þau séu nokkuð sanngjörn. Þau slást ekki. Kannski er þetta afleiðing af því að vera alin upp af konum. Ég held að þessi kynslóð muni stjórna landinu betur en brjálæðinar sem hafa gert það upp á síðkastið.

Þegar ég byrjaði að vinna hjá ÍMS kveið ég því svolítið að vinna með krökkunum. Þær áhyggjur voru óþarfar. Á þessum tíma hefur ekki komið upp eitt einasta vandamál. Umgegnin til fyrirmyndar og ekkert kjaftæði.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap