Dagdraumar

Nú ætla ég að leyfa mér að vera eins og lítill krakki; er það reyndar kannski alltaf, svo við skulum segja að ég ætli að leyfa mér að vera það opinberlega í þetta skiptið.

Eins og fram kom í "hjólrýninni" minni, þar sem ég fjalla um hjólið mitt Aðalstein, þá er helsti gallinn við að fá svona hjólabakteríu -þá er ég ekki að spá í að hún blandist ofan í golf- veiði og allar aðrar bakteríur- að maður uppgötvar að maður þarf svo mörg hjól í viðbót.

Í veiðum er ekki nóg að eiga bara eina byssu. Þú þarft haglabyssu í rjúpu, gott að vera tvíhleypu. Þú villt eiga eina hálfsjálvirka með keflar- skepti í skurðinn og gæsina. Lítinn riffil til að drepa vargfugla innan bæjarmarka og þar sem er ólöglegt að skjóta, stóran riffil í hreindýrið. Ekki of stóran samt, þanni þú þarft annan ef þú ætlar að veiða elg eða villisvín. Við þurfum ekki að ræða golf, þar er nauðsynlegt að bera minnst 14 kylfur og eiga nokkar til vara heima.

Ég keypti mér hjól sem ég er viss um að henti því sem ég ætla að nota það í best. Til að fá líkamlega útrás, fara í vinnu, æfa fyrir þríþraut og ferðast um héraðið og jafnvel lengra. Þó eru á þessu nokkrir vankanntar. Ég t.d slít núna upp dekkjunum sem ég er með undir á methraða og þarf því ný dekk. Dekkin sem henta best í þetta eru svona hefðbundin Racer- dekk, sem ég hef nú fjárfest í. Þau áftur á móti henta engan veginn fyrir fjallendi og slóða. Ég ætlaði því að redda málinu og fá mér bara auka felgur. Felgurnar sem eru undir hjólinu mínu kosta 80- 100 þús ef ég kaupi þær stakar. Fy faen i helvete! Ég þarf nokkur hjól í viðbót.

Specialized Source
Þarf eitt svona sem ég get notað allt árið í vinnu og annað. Kaupa vagn til að hengja aftaní fyrir Brynleif og inkaupaleiðangra. Nagladekk undir á veturnar en malbiksdekk á sumrin. Einnig gott ferðahjól

Specialized Enduro
Þetta þarf ég í fjallendið hérna fyrir ofan Krókinn. Einnig ef mann langar að fara meira upp á Hálendið eða fjallvegi. Langar að fara Heljardalsheiði og Laugarveginn.

Specialized Roubaix
Þetta hjól myndi ég nota á vegunum og sem æfingatæki. Á líka draum um að fara til Frakklands og hjóla, m.a í ölpunum. Einnig hægt að nota það í vinnu á góðviðrisdögum.

Specialized Shiv Elite
Þetta hjól myndi ég aðalega nota inni á trainer en einnig ef ég legg einhverntíman í hálfan eða heilan járnkarl.

Þegar ég verð búinn að kaupa mér þessi hjól þá nota ég Aðalstein í vinnuna á veturnar, sumrin, hjóla malar og sveitavegi og allt þar á milli.

Stundum er gaman að vera barn aftur, láta hugann reika og hugsa um allt fína dótið sem mann langar í. Munurinn er bara að í þetta skiptið eru þetta allt hreinar nauðsynjar!

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Bara að kaupa allt sem manni langar í og skulda sem mest, það virðist virka best ef allt fer til fjandans. Eða réttara að segja kannski þegar allt fer til fjandans.
Halldór
Bjarni sagði…
Jú það er held ég bara málið, ég tilkynni konunni það á eftir.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap