✝ Tiger Woods, ágúst 2009 - apríl 2012
Tiger Woods |
Hún kom alltaf inn á morgnana og sat í glugganum þegar maður borðaði morgunmat. Hún fylgdi strákunum í skólabílinn, kom svo inn aftur og svaf svo í stólnum sínum, oft fram undir kaffi. Steig þá niður, teygði úr sér, geispaði og labbaði syfjulega fram í dallinn sinn.
Fyrir tveimur vikum varð hún veik greyið. Hún byrjaði að æla og æla, hári og grasi. Hríðhoraðist svo að lokum en aldrei fannst neitt að henni. Hún dó svo hjá dýralækninum í morgun.
Langar að lokum að setja inn eina mynd sem lýsir henni ágætlega. Guðrún vaknaði í sófanum og svona sat kisa til fóta, eins og ekkert væri sjálfsagðara.
Jæja, nóg af væmni. Þakka kisu fyrir samveruna og hún getur verið róleg með það að það kemur engin kisa til með að taka hennar stól eða dalla.
Kveðja, Bjarni
Ummæli