Sjónvarp og bananar

Verið að glíma við Kát, einn af bestu vinunum
Vaknaði í morgun og laumaði mér fram með Brynleifi svo Guðrún gæti sofið aðeins lengur. Á meðan kaffið rann át ég brauð með hnetusmjöri og sultu og hlustaði á B&B á Rás 2 (alveg að detta á eftirlaun bara). Stappaði svo banana handa litla mannium. Eftir matinn varð hann síðan eitthvað ókyrr á gólfinu þannig að ég pakkaði honum undir teppi í ömmustólinn, dudda í munninn og kveikt á morgunsjónvarpinu. Ég veit.... þetta er skelfilegt.... Hann er bara 6 mánaða en getur samt horft á morgunsjónvarpið, hann hefur þetta úr móðurættinni.

Morgunkveðjur, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap