Meira hjóla eitthvað

Mamma að prufa Aðalstein
Án þess að ég þurfi að rétlæta kaupin á Aðalsteini (hjólinu mínu), þá er gaman að velta fyrir sér sparnaðinum sem fæst af því að ferðast á því til vinnu. Ég þarf ekki að fara nema 3,3 km til vinnu en samt næ ég að reikna mig upp í umtalsverðar upphæðir á ári. Ég fer stundum heim í mat líka í hádeginu og því er ég að fara frá 6,6 og upp í 13,2 km/dag. Segjum að þetta séu að meðaltali 8 km á dag. Ef við tökum ríkistaxta - sem er 104 kr/km- og ég vinn 235 daga á ári þá gera þetta 195.000 kr. Þetta er tala sem Aðalsteinn þekkir vel. Ég er kominn upp í 20 þúsund síðan ég byrjaði hjá Hólaskóla í hálfu starfi í byrjun febrúar, ekki slæmt.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Held þú sért að græða gott betur en það Bjarni, held þetta séu 208.680,- vegna þess að ríkistaxtinn er kominn í 111 kr/km
Bjarni sagði…
Já SÆLLLLL! Ennþá betra;)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap