Kókó mjólk

Las um daginn í Triathletes World Magasine að kókómjólk virkaði vel sem hleðsludrykkur á löngum hlaupum, á hjóli og við aðra áreynslu. Vitnað er í rannsókn þar sem tveir hópar hjóluðu þar til þeir voru að niðurlotum komnir. Síðan fékk annar hópurinn kókómjólk (commercial chocolate milk) en hinn hópurinn tilbúna kolvetna og próteinblöndu af vinsælli gerð. Síðan var báðum hópum skipað að fara á hjólin aftur. Þeir sem fengu kókómjólkina gátu farið 50% lengra en samanburðarhópurinn áður en þeir fóru að þreytast aftur.

Ok, það er ekki vitnað í hvaða rannsókn þetta var eða hver framkvæmdi hana, ég veit. Og ekkert er fjallað um afhverju þessi munur gæti stafað, en þar sem mér finnst kókómjólk alltaf jafn góð, þá vil ég trúa þessu.Til að sannreyna þetta þá greyp ég með mér eina kjókómjólk á hjólið áðan. Eftir 20 km. steig ég af hjólinu -þá alveg að sálast úr volæði og hungri- og stútaði þessari fernu (bölvandi yfir því að ég hafi ekki líka haft samloku eða meiri kókómjólk). Ég var kominn með nettan skjálfta og hafði svo sem ekki trú á að þetta myndi gera mikið. En það var í rauninn ótrúlegt hvað þetta stóð með manni restina af ferðinni.

Áfram kókómjólk

Kveðja, Bjarni


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap