Jæja nú fór ég til sjúkraþjálfara á Akureyri í dag út af blessuðum hnjánum. Hann sagði að ég væri dæmigerður nútímamaður að því leiti að ég væri með ónýtan rass. Við sitjum allt of mikið. Hinn dæmigerði hrausti nútímamaður (þ.e sá sem nennir að hreyfa sig eitthvað) situr í vinnu allan daginn, hjólar svo hokinn í ræktina, tekur svo bekkpressu og ónýtar magaæfingar. Við styrkjum okkur alveg á fullu að framan og við erum alltaf að vinna "inn í okkur". Ég kann ekki alveg að segja frá þessu, en hver veit, kannski endum við með því að ganga aftur á fjórum fótum?

Ég er með veika rassvöðva sem styðja ekki nóg við mig þegar ég er að hlaupa. Það sama má segja um kálfa, þeir eru hvorki nógu sterkir né teygjanleigir. Mjaðmir hvorki nægilega sterkar né liðugar. Þetta veldur því (að hans mati), að þegar ég fer að þreytast eftir nokkra km, þá fer ég að hlífa mjöðminni og rassinum sem svo aftur veldur því að ég fer að stíga vitlaust niður og voila!: átakið á hnéið verður vitlaust og ég fæ í hnéin. Það er sem sagt ekkert að hnjánum, þau eru í fína lagi. Mig vantar miðlægan styrk skulum við segja.


Ég er kominn með masssíft æfingaplan, teygjur, frauðrúllu og allskyns vesen. Þetta eru æfingar sem líta út fyrir að vera frekar auðveldar, meira að segja fyrir ellilíferisþega, en það er nú ekki tilfellið góðan daginn. Ég hélt t.d að ég væri með sterkan maga. Jú jú, magavöðvarnir utaná eru ágætir en þá notum við einu sinni á dag, þegar við vöknum og reysum okkur upp. Ég á að styrkja innri vöðvana.

Jæja þetta er nú að verða meira tuðið. Nú er hann búinn að stoppa hlaupin hjá mér í bili allavega fram í maí. Bara hjóla og synda. Nú er bara að fara í markmiðin sín og setja allt á hold, nema þríþraut í júlí, ég stefni enn á það. Ég get allavega ekki verið að slá nein met í hlaupum á næstunni og lít á þetta björtum augum því ég hlýt þá bara að bæta mig meira í sundi og hjóli.


Annars var hetja dagsins Daníel. Við fórum með hann í magaspeglun í dag til Akureyrar og þar kom í ljós að hann er með einhverjar magabólgur og óeðliega bakteríuflóru. Hann stóð sig eins og hetja og græddi natturlega á þessu öllu, Subway, ís, borgara og hvað eina. Nú þarf kappinn að taka einhver lyf og mæta aftur í skoðun þegar sá kúr er á enda. Þetta verður allt sem nýtt viti menn. Jæja verð að fara að gera eitthvað af viti.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap