Frábært


Jæja nú hef ég verið með pistil um hitaeiningar í smíðum alltof lengi. Ég var rétt í þessu að klára hann og setja hann inn í fróðleikinn hjá mér. Ég vil samt vara fólk við að þetta eru nú eiginlega bara gagnslausar upptalningar. Annars er ég að skrifa annan pistil um sund sem ég drulla vonandi inn fyrr en síðar.

Fór í Skokkhópinn í morgun og hljóp 10 km. Var að hlaupa í hópi með 2 körlum og það varð til þess að maður fór að sperra sig óþarflega mikið. Planið var að fara langt og hægt en þetta endaði öðruvísi. Æfingar ganga annars bara vel, maður er bjartsýnni með sundið en oft áður og stöðugar æfingar fyrir ITB bandið hafa nú gert það að verkum (ég kross fingur), að hnéin eru bara fín. Ég er að verða gangandi gagnabanki um hvernig á að laga hlauparahné svo endilega flettið upp í hausnum á mér.

Annars er bara allt fínt að frétta. Kona og börn dafna vel við heraga og ósveigjanlegan matseðil. Brynleifur er farinn að velta sér nokkuð reglulega og við höfum verið að fara með hann í ungbarnasund. Honum líkar það prýðisvel og það styttist í að hann verði látinn kafa, en hingað til höfum við bara verið að gera æfingar. Það verður gaman. Annars er það fyndið að drengurinn fær alltaf óstöðvandi sogþörf þegar hann er í lauginni og treður helst báðum höndum upp í sig í einu og vill vera þannig.

Að lokum vil ég koma með gullkorn frá Daníel. Ég veit ekki hvaðan hann hefur þetta, en ég er mjög ánægður með þetta. Við matarborðið sagði hann "Ég ætla aldrei að reykja, aldrei að drekka brennivín, aldrei að taka eiturlyf og aldrei að setjast á þing". Segir þetta eitthvað um ástandið í þjóðfélaginu í dag?

Hafið góða helgi,

Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Flottur hann Daníel!!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap