Langar að byrja á því að setja hér inn eina mynd af okkur feðgum sem ég fékk senda frá pabba og Hafrúnu. Það má vart á milli sjá hvor er gáfulegri. Ég dreif líka í því að bæta inn myndum í Ömmumyndir þar sem ég hef verið undir gríðarlegum þrýstingi frá ömmunni.
Annars var helgin fín. Fór í rjúpu í gær í fjallið hjá tengdó og náði í jólamatinn. Veðrið var frábært, útsýnið yfir Tröllaskagann og eyjarnar stórbrotið og samlokan með rúllupylsunni bragðaðist að vanda vel með kókómjólk og kaffi. Löngun í Viceroy gerði vart við sig þegar vestið fór að þyngjast, ótrúlegt hvað þetta situr í manni þó maður færi ekki að láta sér detta í hug að fá sér íþróttablys í dag.
Fór út að hlaupa á föstudagskvöldið en lét svo rjúpnaferðina nægja sem æfingu helgarinnar. Reiknaðist til að þetta hafi verið ca. 15km gangur með 700 metra hækkun og mann sveið vel í lærin á leiðinni niður. Langt síðan maður hefur fengið strengi en nú gerðu þeir vart við sig í dag. Annars var ég að bæta inn skemmtilegum pistli um egg í næringardálkinn minn ef einhver hefur áhuga.
Kveðja, Bjarni

Ummæli