Örfréttir

Jæja þá erum við komin heim. Fengum brottfararleyfi í morgun enda allir við hestaheilsu. Tókum því rólega fram að kaffi en pökkuðum svo drengnum inn í bíl og brunuðum af stað. Hann svaf nú reyndar af sér Öxnadalinn greyið litla, sem var synd enda skein yfir landi sól á hálum vegi og Hraundrangarnir voru í essinu sínu. Allt hvítt og fallegt. Eftir komuna heim hefur hann sofið og drukkið á víxl og við skulum reikna með að svo verði áfram. Stóru strákarnir verða hjá tengdó í nótt og við hittum þá seinnipartinn á morgun. Það er ágætt að fá smá rólegheit svona fyrst eftir heimkomuna.

Fór út að hlaupa áðan og svo skellti ég mér í sund. Hljóp rúmlega 5km og var léttur á mér. Synti 500 metra skrið og það gekk líka bara ágætlega. Keypti mér frauðrúllu í dag til að hamast á IT bandinu í von um að það lagi á mér hnéin. Er búinn að taka eitt session og hef trú á þessu.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Gott að þið eruð komin heim og vonandi gengur allt vel héðan í frá. Hlakka til að sjá þennan dúllurass sem fyrst, bjarnið sko!
Knús á ykkur!
Bestu kveðjur,
Sigrún
Bjarni sagði…
Takk Sigrún, hann hlakkar líkta til að hitta ykkur;)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap