Allt gengur vel
Mamma komin með alla strákana sína
Eins og einhverjir hafa kannski heyrt, þá þurftum við að fara aftur með litla guttann okkar á spítalann. Eftir tæplega sólahring heima mældi ljósmóðirin 39°C hita og því ekkert annað að gera en að fara aftur á spítalann. Allt í einu var kominn sjúkrabílll fyrir utan, fullt af fólki inn í svefnherbergi og maður snérist bara í hringi. Mamman var svo drifin með drenginn inn í sjúkrabíl og ég þurfti að keyra með eitthvað dót í tösku -vissi ekkert hvað ég hafði tekið með- á eftir bílnum. Þetta er sennilega það erfiðasta sem ég hef lent í.
Drengurinn var tekin í allskonar test og próf, tengdur við snúrur og slöngur og settur á mjög stíft drykkjarplan. Hitinn rjátlaði af honum mjög fljótlega, ekkert hefur ræktast úr prufum og nú er hann farinn að fá að ráða matartímunum. Í dag voru síðustu snúrurnar og slöngurnar teknar. Þau þora samt ekki að sleppa okkur heim strax en það er allt í lagi þar sem við höfum það alveg ljómandi fínt. Barnalæknirinn var hérna á stofugangi áðan og sagði að hann væri bara æðislegur. Ég held að foreldrarnir gætu ekki verið meira sammála. Þó maður hefði viljað sleppa við þetta er þó ljósi punkturinn sá að við fáum smá quality time saman hérna og getum látið stjana við okkur.
Fór út að hlaupa í gær og náði aðeins að tæma hugann. Ætlaði að hugsa um nöfn á strákinn á hlaupunum en var alveg geldur. Fór 7,5km og ætla að reyna að ná 15km í dag til að laga vikuna til.
Kveðja, Bjarni
Ummæli