Lífið hjá okkur hérna í Laugatúninu hefur gengið vel frá þvi við komum heim aftur. Mestur tími fer í að stara dolfallinn á nýja fjölskyldumeðliminn og kynnast honum aðeins betur. Hann er farinn að hafa meiri eirð í sér til að "spjalla" í rólegheitunum, svona allavega þegar hann er ekki að ærast úr hungri eða með ólgu í maganum. Það hefur verið frekar rólegt með gestagang enn amma og afi í Mývó er að koma í heimsókn í dag og afi og amma í Svíþjóð voru að melda sig 11. nóv.
Pabbinn heldur áfram að fara út að hlaupa eins og vitfirringur með misjöfnum árangri. Fór með Skokkhópnum í gær og hljóp 10km. Fórum þetta á góðum hraða og ég er nokkuð bjartsýnn á að ná hlaupi upp á 45 minútur um næstu helgi á Akureyri ef ég kemst og veður verður þokkalegt. Hlauupið í gær kostaði reyndar töluverða verki í hné í gærkvöldi og ég hamaðist á mér með frauðrúllu og nuddaði mig eins og úkraínskur valtari. Er mun betri í dag. Ætla að nudda og teygja aftur í dag og skokka svo ca. 5 í rólegheitum í kvöld til að klára vikuna sem núna er komin í:
Hlaup: 23,9km (endar í 29 eða 30km)
Sund: 2,5
Kveðja, Bjarni
Ummæli