Fyrsta sturtan

Fyrsta sturtan
Jæja þá er dagur 2 eftir heimkomu 2 að byrja hjá okkur hérna í Laugatúninu. Tengdó skutlaði Daníel og Brynjari heim seinnipartinn í gær og við átum dýrindis kjúkling og höfðum það notalegt. Reyndar er Daníel með hálsbólgu og verður því að taka því rólega í dag. Hann segir að hálsbólgan stafi af miklum söng í Hóladómkirkju í vikunni. Árni Gísli kom líka í heimsókn og mátaði nýja frændann. Hann vissi nú ekki alveg hvernig ætti að taka á honum til að byrja með. Sat stjarfur eins og hann væri með tímasprengju í fanginu. Eins og sjá má á myndinni hér að neðan mýktist hann nú allur upp og tók sig vel út í þessu hlutverki.
Árni Gísli og Ónefndur Bjarnason

Mamma var eithvað að nudda í mér að koma fleiri myndum af stráknum hérna inn á bloggið eða í albúm. Við fórum aðeins í gegnum þær myndir sem eru til í gær en það er þónokkur vinna að flokka þær og raða í albúm. Sjáum til hvort við gefum okkur tíma í það í dag.

Fór út að hlapa í gærkvöldi. Fór 8,5km og var léttur á mér en ekki verkjalaus. Fann til í hnjám, mjöðmum og aðeins í ökklum. Er að verða pirraður á þessum stirðleika og ætla að láta sundið nægja næstu 2 daga og taka svo 10-12km á laugardag með skokkhópnum og sjá hvort þetta fari ekki að skána. Annars verð ég að fara að prófa að fara í aðra hlaupagreiningu og athuga skóskipti. Þegar ég kom heim af hlaupunum skelltum við feðgarnir okkur saman í sturtu og var þetta fyrsta sturtan hjá guttanum. Hann var ótrúlega rólegur yfir þessu öllu saman þó ég haldi nú að mér hafi fundist þetta ennþá stórbrotnara en honum. Priceless

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap