Nefdrykkja

Eitthvað hef ég nú misskilið þennan valmöguleika að bæta við síðum hérna á bloggið. Þetta er eitthvað takmarkaðra en ég hélt í fyrstu. Jæja, ég skoða þetta við tækifæri.

Fórum á Akureyri í dag og allt lítur vel út með krílið, sem nú á að vera orðið 15 merkur, svona álíka stórt og ég. Það á samt ekki að gera neitt í þessum málum fyrr en 13 október. Ef ormurinn verður ekki kominn í heiminn þá verður farið í einhverjar særingar, geitur skornar og kveikt í hvítum lökum.

Er skapi næst að fara að skrifa um pólítik og samfélagsmál. Ég er hálf ringlaður í allri þessari geðveiki sem geysar í þjóðfélaginu í dag. Það eru allir svo hrikalega reiðir og geðveikir. Fólk er svo reitt að það greinir ekki einu sinni í sundur meginatriði, sér ekki heildarmyndina. Greinir ekki skuldavanda heimila frá ríkisfjármálum, bankamenn, frá útrásarvíkingum, alþingismenn frá embættismönnum. Þetta hrærist bara allt saman í hausnum á fólki og það öskrar af reiði. Fólk hlustar líka á púkana á fjósbitunum. Púkana sem hvísla því að fólki að það hefði verið hægt að fara í gegnum þessa kreppu án þess að finna fyrir því. Fá kaffi og smurt í rúmið. Æi kannski ætti maður bara að öskra, hvað veit ég.

Tók fína æfingu áðan. Hljóp 3,6 km áður en ég skellti mér í sund. Er að reyna að ná tökum á þessa blessaða skriðsundi en þyrfti eiginlega að hafa einvhern til að leiðbeina mér. Maður tussast samt í gegnum æfingarnar þó því fylgi á köflum nokkur klórvatnsdrykkja, bæði með munni og nefi. Synti 700 metra í dag.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Nei nú gengurðu of langt.

Halldór
Bjarni sagði…
Biddu fyrir þér, þetta er aðeins byrjunin.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Veðurblíða og töluverð sól

Negri í Þistilfirði