Eins og Disney-álfur
Á stofugangi í morgun var ákveðið að ónefndur Bjarnason þyrfti að klára 5 daga sýklalyfjakúr áður en við fengjum að fara heim. Það þýðir væntanlega að við munum dvelja hérna 2 nætur í viðbót. Gríslingurinn dafnar vel, er kominn með undirhöku og urrar af græðgi þegar hann kemst í námunda við brjóstin  á móður sinni.
Hvíld milli brjósta
En svo við útskýrum nú þessa flottu húfu sem drengurinn er með á myndinni þá er þetta nýr æðaleggur. Hann var farinn að kveinka sér undan sýklalyfjagjöf í hendina og því var ákveðið að setja legginn í hausinn þar sem auðvelt er að finna æðar. Þetta hljómar kannski óhuggulega en er víst besta lausnin.
Alveg dolfallin hvort af öðru
Fór út að hlaupa í gær og nú er hægr hnéið farið að kvarta aftur. Hljóp frá FSA, Naustaveg, Leirubrú og tók Litla Eyjafarðahring og á FSA aftur. Tók eitt orkugel á leiðinni og það virðis virka fínt að japla á svoleiðis sulli. Veit ekki hvað ég á að gera í hnéinu en get ekki sagt að ég hafi áhyggjur af því núna. Hlaupið í gær var 14km, tók 1klst :20 mín og ég var á lágum púls allan tímann. Vikan endaði því í:

Hlaup: 21,5km
Sund: 1,1

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Gott að heyra að hann braggast drengurinn :) Njótið þess bara að vera á FSA, ég var þar í rúma viku og leið bara eins og blóma í eggi!Bið kærlega að heilsa öllum gellunum á deildinni, sérstaklega Tinnu, Höllu, Birgittu og Möllu!
Knús til ykkar
Siva
Nafnlaus sagði…
Alveg dásamlegur ungi pilturinn, vonandi að hann braggast vel.
Kauptu þér svona Foam roller og gerðu þessar æfingar í gríð og erg, virkaði allavega fínt fyrir meiðslin hjá mér, sem eru þau sömu og þín. Helvítis IT bandið í ruglinu.http://www.runnersworld.com/article/0,7120,s6-241-285--11556-0,00.html

Hinrik Geir
Bjarni sagði…
Já takk fyrir það bæði tvö. Siva við erum á barnadeildinni en látum kveðjurnar berast yfir. Við höfum það líka alveg dásamlegt.

Hvar færðu svona Foam roller á Íslandi Hinrik? Sú sem kommmentaði á undan þér er sjúkraþjálfari, maður er í góðum höndum hérna á blogginu;)
Nafnlaus sagði…
Getur talað við þá hjá Altis, þeir eru með umboð fyrir Under Armour íþróttavörurnar og svo eru þeir með allan fjandann í viðbót, þar á meðal foam roller.

kv Hinrik Geir
Bjarni sagði…
Já sæll aftur og takk. Ég keypti svona hjá eflingu sjúkraþjálfun á Ak í dag. Nú er bara að rúlla;)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap