Breytingar

Er að bæta aðeins við bloggið hjá mér einhverjum síðum. Þetta verður nú allt mest tengt einhverri hreyfingu og golfi en ég er ekki búinn að ákveða þetta endanlega. Erum búin að hafa það fínt um helgina en ekkert bólar þó á blessuðu barninu. Förum til Akureyrar á morgun í skoðun.

Ósmann á vaktinni
Fór út að hlaupa í dag og fór ég út að ósnum á Vestari Héraðsvötnum. Áður en brúin yfir Vesturós rétt vestan við Sauðárkrók var byggð árið 1925 fóru menn yfir ósinn með ferju. Jón Ósmann (sem styttan er af) var ferjumaður, þjóðsagnapersóna í Skagafirði og drukknaði í Ósnum árið 1914. Það væri hægt að skrifa mikinn bálk um Jón en ég læt það ógert.
Gamla brúin yfir Ósinn
Þetta er hinsvegar fjandi skemmtileg hlaupaleið. Þegar maður kemur upp á útsýnisplanið getur maður farið eftir slóða sem liggur yfir gömlu brúnna og veg sem leiðir mann aftur inn á þjóðveginn. Einnig er hægt að taka fjöruna til baka sem er oft góður kostur þegar það er hálka og snjór. Var frekar þungur á mér í dag enda hef ég verið nokkuð virkur þessa vikuna.
Hlaup dagsins: 11,2
Vikan endaði í 33 km

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap