Allt rólegt

 Brynjar og Daníel að fá sér fruit cocktail
Ekkert að gerast hjá okkur skötuhjúum. Guðrún að verða nokkuð þreytt á þessu og frekar erfitt fyrir mig að geta ekki gert neitt. Maður reynir bara að vera góður við hana, nudda og elda matinn.

Fór út að hlaupa áðan í rokinu. Fór 7,5km og er léttur á mér þessa dagana. Skellti mér aðeins í pottinn en gafst svo upp þar sem einhver maður þusaði einhver reiðinnar býsn um hvað Apple væri hættulegt, væru að njósna um alla og myndu yfirtaka heiminn.

Fór heim og eldaðið mat. Eldaði kjúkling upp úr hvítvíni, púrrulauk, salti, pipar, kartöflur, gulrætur, baunabelgir og spergill. Brún grjón með þessu. Alltaf sama heilsan, eða næstum því.

Merkilegt hvað getur verið erfitt að finna tíma til að nostra meira við bloggið. Það kemur að því. Læt fylgja með að gamni mynd úr símanum af pjökkunum þar sem þeir voru að snæða ávexti eitthvert kvöldið.


Hafið það gott, Bjarni 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap