Vegalengdir

Þegar ég byrjaði að hlaupa reyndi ég að hafa það að markmiði að fara frekar rólega yfir, ekki of langt í einu og reyna frekar að fara oftar. Það er staðreynd að það skiptir engu máli hvað maður fer hratt, þó það sé erfitt að berjast við egóið oft á tíðum. Ég vildi þó helst fara 25 km á viku og það gekk nokkuð vel eftir. Þetta var ekkert fræðilega útreiknað eða neitt svoleiðis. Ég leit bara svo á að þessi vegalengd hlyti að tryggja það að maður næði nokkuð stöðugum framförum og nálgaðist markmiðin sem maður setti sér (meira um það síðar).

Ekki slapp ég nú alveg við meiðsli þó mér fyndist ég fara frekar hægt í þetta og eftir 10 vikur fór ég að fá í hásin. Það voru ca. 3 vikur sem tók að ná sér upp úr því. Frá þeim tíma sigldi ég nokkuð lygnan sjó og fór mest upp í 70 km á einni viku (kem líka að því síðar).

Það hefur virkað ótrúlega hvetjandi á mig að skrá þetta allt svona vel niður og í samblandi við raunhæf markmið tryggt að maður drullar ekki sífellt upp á bak.

Góða helgi, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap