Hills are alive
Skógræktin fyrir ofan Krókinn
Skellti mér út að hlaupa eftir vinnu í dag. Ætlaði að taka það frekar rólega þar sem ég fann aðeins fyrir sprettæfingunni í gær. Einhverra hluta vegna gat ég ekki hugsað mér að hlaupa á malbiki í dag ákvað ég að taka smá "stígahlaup" í staðinn. Það að skipuleggja einhverjar skemmtilegar leiðir, gjarnan eitthvað á möl með útsýni yfir sauðfé og rúllur, er farið að skipta mig meira og meira máli.
Skellti mér fyrst upp í Hverfi og fór svo yfir Sauðárgilið og eftir viðarkurlsstígum. Hljóp síðan Nafirnar, upp á golfvöll og svo upp frá vellinum yfir skógræktina. Þetta var kannski óþarflega pro æfing miðað við álagið í gær. Þegar leið á ákvað ég að slaka bara aðeins á, stoppaði, snýtti mér út í loftið og smellti af þessari mynd.
Fyrir þá sem ekki þekkja til á Króknum setti ég inn smá merkingar. Rauði hringurinn er utanum bæinn Sjávarborg sem ég nefndi í fyrri pósti í sambandi við forfeður mína. Þegar maður hleypur Sjávarborgarhringinn fer maður s.s. hringinn í kringum vatnið sem maður sér við bæinn, Áshildarholtsvatn. Við búum svo í hverfinu sem ber í Sjávarborgarbæinn. Ég hleyp einnig oft út að ósum og ekki ónýtt að hafa þessa löngu strönd á veturnar. Hinsvegar mætti alveg gera meira úr þessu skógræktarsvæði fyrir ofan bæinn. Frekar illa skipulagt og eitthvað er nú verið að spara stíga og merkingar.
Hlaup dagsins: 6,53 km
Í þessum mánuði: 107,6
Ummæli