Skógarhlaup
Æfingaráætlunin mín, sem snýr að því að koma mér í svipað form og pre hnémeiðsli, gengur ágætlega. Tók smá utanvegar hlaup áðan, m.a annars hérna í skóginum við Sauðárgilið og um Nafirnar. Þetta gengur ágætlega og ég stefni á 10km á sunnudag.
Ég er búinn að setja mér ákveðin markmið fyrir vorið og nú er að sjá hvernig gengur að halda dampi. Maður hefur aðeins verið að kíkja í ræktina líka en það sorglega er að maður hefur ekki efni á því að kaupa sér árskort. Það hefur sína ókosti að vera úti á landi þar sem samkeppnin er engin. Það kostar 54.500 krónur að kaupa árskort í ræktina hérna.
Eftir æfinguna aðstoðaði ég svo Guðrúnu í pizzu-gerð, átum svo á okkur gat og horfðum á Útsvar. Golfmót á morgun og svo bara almenn slökun.
Ummæli