Slydda

Skellti mér út að hlaupa í slyddunni þegar ég kom heim úr vinnunni. Fór 5 km hring og var bara í góðum gír. Nú stefnir maður að því að taka eitt stutt hlaup í viðbót í þessari viku og svo taka eitt langt og rólegt á sunnudaginn. Þegar ég kom heim eftir hlaupið var nýbakað brauð á borðum og svo skelltum við okkur öll í sund. Ekki slæmt.

Eftir að þessi hnjámeiðsli fóru að gera vart við sig fór ég meira og meira að spá í reiðhjólum. Mig langar fyrst og fremst til að eignast hjól til að djöflast á og fara hratt yfir en þarf samt að geta farið á möl. Einnig ekki verra að geta farið út í búð og verið á nöglum. Ég er búinn að skoða og skoða og orðinn sannfærðum um að svokölluð Cyclocross séu málið fyrir mig. Þetta er í rauninni racer á breiðari dekkjum, alvöru græja. Nú er bara að byrja að safna og gera sér svo dælt við einhvern sem er á leið til USA. Skora á alla að kíkja á Ebay og skoða þessi hjól. Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap