Kirkjuhlaup
Sjávarborgarkirkja (kirkjukort.net).
Af okkur er allt þokkalegt að frétta. Guðrún er reyndar að verða nokkuð þreytt á að burðast með þessa bumbu og gott væri ef íbúinn þar inni léti nú ekki bíða mikið eftir sér. Ein kunningjakona okkar, sem var sett á eftir Guðrúnu, átti í gærkvöldi og ekki laust við að Guðrún öfundi hana.
Fór út að hlaupa í gær og er allur að koma til. Fór Sjávarborgarhringinn sem er skemmtilega blanda af þjóðvegi, malarstígum, sveitabæjum og náttúru-stöffi. Leiðin liggur hringinn í kringum Áshildarholtsvatn þar sem er mikið fuglalíf og svo hleypur maður framhjá Sjávarborgarkirkju sem er gömul timburkirkja sem reist var 1853. Hún var notuð þar til Sjávarborgarsókn var sameinuð Fagranesprestakalli 1892 og þá notuð sem skemma allt til 1960 þegar áhugi manna kviknaði á því að endurgera kirkjuna. En þetta var smá útúrdúr því ég ætlaði að segja að ég hljóp að mestu rólega en jók tempóið í 2km til að gleyma ekki hvernig er að hlaupa hratt. Er farinn að taka stefnuna á Vetrarhlaupsmótaröðina hjá UFA á Akureyri í vetur og því gott að halda sér við efnið.
Kveðja, Bjarni
Ummæli