Jarm
Fórum á sjúkrahúsið á Akureyri í gær þar sem við parkeruðum Guðrúnu undir sónartækinu hjá honum Orra lækni. Eftir bumbuþukl og sónarmælingar var kveðinn upp vaxtardómur; barnið er ca. 15 merkur núna. Allt lítur vel út og því bíðum við bara átekta.
Þegar ég kom heim skrapp ég út að hlaupa. Hljóp fyrst upp að Hlíðarkaupi og svo niður að Sjúkrahúsi sem staðsett er í Sauðárhæðum. Forfaðir minn Sölvi Guðmundsson bjó um skeið á Sauðá í Sjávarborgarsókn og gegndi meðal annars stöðu hreppstjóra. Þetta hefur verið í kringum 1845. Mig langar því að komast að því hvar bærinn stóð nákvæmlega.
Eftir þetta hélt ég sem leið lá í kvöldblíðunni niður á bryggju. Það var stutt í frostið en stillt og fallegt. Ég hljóp framhjá Verinu og við sláturhúsið fór maður að heyra neyðaróp blessaðra lambanna sem biðu eftir því að morgunvaktin myndi mæta til að drepa í þeim. Lykt af blóði, kindaskít, innmat, gærum og haustinu.
Ég tók stefnuna heim aftur. Þegar ég koma að Þreksport sá ég tvær mannseskjur á gangi. Það var nokkuð langt í þær en ég sá sígarettuglóð í myrkrinu. Varð hugsað til þess hversu gott væri nú að fá sér eina Viceroy eftir hlaupið. Helvítis vitleysa að hafa hætt þessu. Viceroy voru fyrst framleiddar í Bandaríkjunum árið 1936 og er fyrsta sígarettutegundin sem var fjöldaframleidd með kork filterum. Seinna tóku þeir forystu í framleiðslu vindlinga með síur úr sellulósa acetati, sem varð svo industry standar og þær síur sem við þekkjum í dag. Þetta var árið 1953. Síðustu ár hefur dregið úr framleiðslu Viceroy og eru þær aðeins framleiddar á fáa markaði þar sem markaðsstaðan hefur haldist sterk. Þetta eru lönd eins og Rúmenía, nokkur lönd í Austurlöndum nær, Tyrkland, Argentína og Chile. Fyrir þá sem ekki vita þá reykir Hemmi Gunn Viceroy.
Ég skilaði mér heim á endanum. Þá voru 7.5 - 8 km að baki og vellíðan í miklu hámarki. Fannst ég þurfa eitthvað bitastætt að éta, fór út í búð, keypti sláturkepp, gerði hræring (átti graut í potti), hellti út á hann frosnum bláberjum og slafraði þessu í mig. Veit ekki afhverju, en mér fannst þetta snilldar gott. Kannski er það aldurinn.
Kveðja, Bjarni

Ummæli