Ferðasaga V


Sunnudagurinn 12.06.2011
Vöknuðum um kl. 08:30 að staðartíma í Halifax og supum eigi hveljur heldur dýrindis árbítssafa. Fengum egg borin fram á silfurfötum og naktir vöðvastæltir karlmenn báru á borð ferskan ananas undir taktfastri tónlist. Ákváðum að drífa okkur í burtu.

Fengum bílaleigubíl og lögðum af stað til PEI. Komum til Charlottetown á PEI milli 13 og 14 og komum okkur fyrir. Þá vorum við búin að keyra yfir lengstu brú í Kanada sem mælist á góðum degi 12,9km. Ég og Jens fórum svo út og hlupum 10km áður en ég fór á opnunarhátíðina á ráðstefnunni. Þar var múgur og margmenni, ostrur, kræklingur, fiðluspil og þjóðfánar. Endaði kvöldið á því að fara með Jens og Halldóru á steikhús og lagði mér til munns nautgripakjöt sem steikt var og kryddað með nákvæmni og kunnáttu hins nærgætna matargerðamanns.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði