Hlaup og hlaup
Var að sjá það á Garmin síðunni minni að ég er búinn að skottast 157 km á síðustu 30 dögum. Það gera 5,2 km á dag sem er nú yfir...hmmmm.... væntingum? Veit ekki hvort að væntingar séu rétta orðið þar sem ég ætlaði mér aldrei neitt sérstakt með þessu og veit ekki en hvert ég stefni. Jens frændi gaf mér reyndar bók um helgina sem gæti hjálað mér að átta mig á því. Ég er búinn að fara 524 km frá 26. desember 2010 þegar ég tók úrið mitt í notkun. Inn á hlaup.com sé ég svo að ég er búinn að fara 620 km síðan 23. nóvember. Það gera 3,8 km/dag sem er líka langt yfir því sem ég hefði "vænst". Sérstaklega þar sem inn í þessu eru smá meiðsl, ferðalög og annað slíkt. Gaman að halda svona utanum þetta og reyndar nauðsynlegt.
Svo verð ég að koma út úr skápnum með að ég er búinn að festa kaup á brúsabelti. Þetta smámsaman versnar.
Í dag er miðvikudagur. Sjónvarpslaus miðvikudagur. Þar sem ég er orðinn svo gamall og leiðinlegur ákvað ég að við skyldum ekki kveikja á imbanum á þessum dögum. Fyrst var nú ekki vel í þetta tekið á heimilinu en nú eru þetta orðnir vinsælustu dagarnir hjá þeim stuttu. Eftir kvöldmat er yfirleitt farið í sund eða upp á æfingasvæði að slá bolta. Síðan er bara að troða í sig ís fyrir svefninn. Ljúft.
Annars er mikið við að vera hérna í bænum þessa vikuna þar sem Sæluvikan er í gangi. Konan mín hefur veg og vanda að skipulagningunni á þessu og verður þetta flottara með hverju árinu sem hún kemur nálægt þessu enda lang lang klárust og fallegust. Það er ekki furða að ég hafi valið hana.
Kveðja, Bjarni
Ummæli
Alveg sammála því að þú átt flotta konu :)