Golfhelgin mikla

Þá er golfhelgin mikla liðin og maður er ennþá lifandi. Ég spilaði í gær á afmælismótinu og lenti í 2. eða 3. sæti eða eitthvað álíka í einhverjum flokki. Ég á allavega eitthvað gjafabréf uppi í golfskála. Krækti tvisvar parpútti og klúðraði síðasta (og eina) drævinu mínu á síðustu brautinni. Ég get því fært sterk rök fyrir því að ég hefði átt að geta unnið þetta blessaða mót. En svona er golfið.

Fór og var caddy hjá Daníel í dag og er alveg rosalega stoltur af honum. Hann lenti í 4. sæti í byrjenda flokki og átti mörg góð högg. Hann lenti í glompu og sló 5 eða 6 aukahögg og það hefur líklega kostað hann 1. sætið því stutt var milli manna. Hann tók þessu samt af mikilli karlmennsku og sagðist vera rosalega ánægður með frammistöðuna. Ég fer með honum upp á svæði við tækifæri og kenni honum að slá upp úr bönker.

Jæja svo er að taka sig til í kvöld og drulla sér suður yfir heiðar á morgun. Fljúgum út á þriðjudaginn. Viva la Norge og Sverige.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap