Skúbb

Mér finnst stærsta frétt vikunnar vera sú að forstjóri Gunnars Majones, Kleópatra Kristbjörg Stefánsdóttir, á vinkonu sem býr í íbúðinni hennar og sú hin sama fékk algert sjokk þegar hún komst að því að það væri búið að líma aftur hurðina á íbúðinni þegar hún kom heim. Þetta kemur fram í DV. Þessi kona hringdi víst í Kleópötru og var í svo miklu sjokki að það skildist vart hvað hún var að tala um. Þetta verða að teljast mikil tíðindi.

Hér af Skagaströnd er það helst að frétta að Kóngurinn (Hallbjörn ef einhver er svo vitlaus að fatta það ekki) liggur á spítala. Hann var eitthvað að vasast niður í fjöru og datt karl greyið. Hann handleggsbrotnaði og vonum við bara að hann nái sér sem fyrst svo við fáum hann aftur í útvarpið.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap