Eurovision

Ég er alveg búinn að sjá það út hvernig ég myndi útfæra Eurovision ef ég hefði áhuga á því að taka þátt. Ég myndi rústa forkeppnina hérna heima með laginu „Ást í laumi“ og semja svo við það enskan texta sem ég myndi nefna „Secret love“. Í aðalkeppninni myndi ég klæðast blárri silkiskyrtu, svörtum buxum og fara í hárígræðslu og ljós og reyna að Eyva mig upp. Ég myndi ráða Friðrik Ómar sem aðstoðarmann og fylgdarsvein og við færum saman í detox til að styrkja liðsandann. Bakraddasöngkonurnar mínar, Regína Ósk, Hera Björk og Guðrún Gunnars væru í bláum kjólum með slaufu.

Þegar lagið væri að ná hámarki á úrslitakvöldinu, nánar tiltekið þegar ég þruma línuna „Baby it was not love affair, it was just a stupid mistake of a jealous guy“ þá tækist ég á loft (væri með ósýnilegan vír í beltinu) og það koma eldglæringar og ég svíf út úr höllinni. Ég myndi hverfa og ekki vera viðstaddur atvkæðagreiðsluna.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði