Þörungar og öskufall
Sit hérna á nýja uppáhalds veitingahúsinu mínu og pikka upp einhverjar fréttir af þessu gosi sem virðist nú vera í hressilegri kantinum. Það er nú ekki einu sinni hægt að grínast með þetta en vonandi kemst ég heim á tilsettum tíma. Maður hefur það annars prýðisgott hérna og búinn að komast í golf og allt saman. Konan sem er með B&B þar sem ég gisti er alveg frábær og bað son sinn um að lána mér kylfur og skó. Spilaði völlinn hérna í gær og var hann bara helvíti fínn.
Annars hefur tíminn aðalega farið í vinnu og maður hefur nóg að gera hérna. Hendi inn mynd af viðfangsefninu mínu sem ég veit að allir verða spenntir yfir. Ekki samt fara að biðja mig að senda ykkur þörungamyndir hægri vinstri, please. Ég skal kannski bara búa til albúm hérna með fullt af myndum við tækifæri.
Hafið það gott, Bjarni
Ps. Þörungarnir eru úr Miðfirði, sýni tekið 07.04.2010
Pss. Aðrar myndir sýna típískt hús hér um slóðir, önnur hversu miklir útgerðamenn hér búa og svo ein frá golfvellinum. Jæja nú fer maturinn að koma og bless
Ummæli