Hringtorg


Nú er farið að styttast í að maður haldi til Skotlands. Kominn með svona pínu ferðastress enda alltaf viss um að ég gleymi einhverju, t.d þörungasýnunum sem ég er að fara með. Ójá þetta hljómar eins og gott party. Ég, einn á ferð, með þörungasýnin mín, rammvilltur í vinstri umferð einhversstaðar uppi í skosku hálöndunum.

Lenti í rökræðum við Guðrúnu um það hvort maður myndi keyra öfugan hring í hringtorgunum þarna, sem er víst staðreyndin. Fór á netið og fann strax hringtort sem heitir The Magic Roundabout í Swindon sem voru valin fjórðu mest ógnvekjandi gatnamót á Englandi 2009. Ekki furða, 5 hringtorg sem stillt er upp í einn stóran hring. Ég er sko ekkert að fara að rúnta þarna. Ég ætla að nota Mosfellsbæinn sem æfingasvæði og fara öfugan hring á leiðinni suður. Ekki vera á ferðinni þarna um kaffileitið á morgun (laugardaginn 10. apríl).

Til að vita við hverju ég á að búast þegar ég fer að keyra þarna úti googlaði ég: Scottish + angry + roundabout og þá fékk ég myndina hér að ofan. Best að vera rólegur bara.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap