Kannski á heimleið

Ég held að maður sé nú bara búinn að bera sig nokkuð vel í þessu rugli og ekki grenjað mikið. Svo heyrir maður af fólki sem er fast í Rússlandi og þá fattar maður hvað maður er heppinn. Bretar sem eru fastir í Rússlandi eru undir 24 klst gæslu eins og fangar, fá ekki að fara út nema í 15 mínútur í einu og fá ekki að komast í farangurinn sinn! Það er fólk þarna sem er neitað um að komast í lyfin sín og er orðið fárveikt. Hvur djöfullinn er þetta? Á þetta ekki að heita siðmenntuð þjóð?

Ætla út á flugvöll kl.08:00 í fyrramálið og á að fá flug kl.12:00. Var samt að heyra í fréttunum að maður ætti ekki að hrósa happi of snemma. Krossa fingur og bið til Jónínu Ben um að allt fari vel.

Fór út að éta áðan og vonandi er það í síðasta skipti sem ég þarf að éta í Glasgow í bili, ekki það að maturinn sé slæmur. Fann þennan líka fína Thai veitingastað og át listagóðan mat, pork kaffir leave og chicken cashew nuts. Í gærkvöldi át ég á ítölskum veitingastað og ég hef nú bara fengið frábæran mat allan tímann og það í landi kartöfluflaga og beikonsláturs.

Alveg eru þeir nú samt merkilegir Skotarnir. Ótrúlega hátt hlutfall af þeim hreinlega bólgnir af áfengisdrykkju, tennurnar eins og réttarveggirnir í Hlíðarrétt og reykja svo eins og skortsteinar.Eftir að reykingarbannið var sett á hérna og stólarnir af pöbbunum fóru að hrúgast út á gangstéttar þá lítur borgin út eins og París eftir kjarnorkusprengju. Ég dýrka að vera í Skotlandi en Glasgow er frekar sjoppuleg og hefur lítinn sjarma. Skítugar göturnar í miðbænum eru frekar rúðustrikaðar og þú ferð ekki spönn frá rassi öðruvísi en að lenda á umferðarljósum. Þó finnast fallegar byggingar inn á milli en önnur hver fasteign í miðbænum virðist samt vera á sölu. Mæli frekar með Edinborg og ennfremur með Oban.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ég elska Glasgow!!! Sérstaklega veitingastaðina þar;)
Kv. Sigga Júlla

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap