Eldgosanostra
Ég get ekki sagt að þetta eldgosavesen hafi neitt róandi áhrif á mann hérna í útlandinu. Jens var reyndar að senda mér skilaboð um að heimild hafi fengist til að fljúga til Glasgow. Ég á flug kl.14:20 frá Glasgow á morgun (laugardag) og verð bara að vona það besta.
Ætla að klára daginn hérna á rannsóknarstofunni og koma mér svo aftur heim á herbergi. Þarf að komast í þvottavél og fá mér að éta. Aldrei að vita nema maður klári golfhringinn sem ég byrjaði á í fyrradag. Herramaðurinn í afgreiðslunni sagði að ég gæti komið aftur þar sem það var svo stutt í myrkur þegar ég var þarna síðast. Ég spilaði 14 holur síðast og því 4 inni. Síðan fer maður á Cuan Mor í 6. skipti og fær sér dásamlega máltíð. Vakna svo kl.7 á morgun og keyri til Glasgow.
Ég á nú eftir að búa til eitthvað albúm fljótlega en ég get líka alveg lofað því að það verður dauðans leiðinlegt. Ekki einu sinni myndir af sjálfum mér.
En hversu gott er þetta gos annars fyrir alla þessa útrásarvíkinga og afdala embættismenn maður! Vá, talandi um að vera saved by the bell. Vonandi gleymist þetta samt ekki eins og öll önnur kúkafýlumál, samanber Árna Johnsen, ráðherra sem sniðganga tilmæli skipulagsstofnunar og líffræðinga, eftirlaunafrumvörp og aðra drullu.
Kveðja, Bjarni

Ummæli