Vinnan göfgar............... já já örugglega


Var á tónleikum með karlakórum, mjög gaman, margt að segja blogga seinna.

Var að setja inn albúm með myndum af nýju rannsóknaraðstöðunni okkar í vinnunni. Synd og skömm að við gleymdum að taka myndir áður en þessu var breytt. Þarna var ekkert að sjá nema mínus allt það sem er komið þarna inn núna. Þó vantar blóm og myndir á veggina. Þarna erum við komin með öll helstu tæki til rannsóknar á öllu milli himins og jarðar, ofna, -80°C frystiskápa, skilvindur, hristiskápa, stinkskápa, smásjá, víðsjá og bara nefnið eitthvað. Það er til hjá okkur. Ef það er ekki hjá okkur þá þarftu ekki á því að halda. Ekki er þó öll sagan sögð og ég gæti bætt inn fleiri myndum seinna. Góða nótt.

Kveðja, Bjarni

Ps. Til gamans má geta að húsið sem rannsóknaraðstaðan er í hét áður H59 og var hraðfrystihús.

Ummæli

Halldór sagði…
Held að þetta sé leiðinlegasta myndaalbúm sem ég hef séð. Mig verkjar í augnbotnana eftir að hafa að skoðað það.
Nafnlaus sagði…
Hvar eru suðutækin??? Þurfið þið ekki að framleiða sótthreinsi- skolvökva og þess háttar. Annars er þetta flott aðstaða. Til lukku!

Kær kveðja
Ragnar Finnur
Bjarni sagði…
Halldór! Ég held að ég verði bara að vera sammála þér. Þetta albúm er alveg ótrúlega leiðinlegt. Ég veit eiginlega ekki hvað ég var að spá?

Já Ragnar þetta er alveg rétt með suðutækin. Við erum að fara að fá suðutæki fljótlega. Þau afkasta bara ekki nema ca. 1 Lundareykdæling/sólahring.

Kveðja, Bjarni

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap