Meiri uppskriftir

Þættinum hefur borist uppskrift af ljúffengum beitukóngi. Það er aldrei að vita nema að ég geti reddað ykkur beitukóng ef ykkur langar að prófa.

Uppskrift að beitukóngi:

Geoff Foale frá Devon sendi þessa uppskrift inn, en hann fékk hana hjá gömlum sjómanni frá Salcombe fyrir 30 árum. Hún er leiðbeining um það hvernig bezt er að matbúa beitukóng. Sjóðið beitukónginn í 15 mínútur. Þegar kuðungurinn er orðinn kaldur er snigillinn losaður úr honum. Skerið hann niður í þunnar sneiðar á skurðarbretti úr við, helzt úr eplatré. Stráið fínt saxaðri steinselju yfir, salti og nýmuldum pipar. leggið rakan klút yfir og geymið í kæli í tvo daga. Eftir það er kuðungurinn settur í bréfpoka og hent í ruslið. Borðið síðan brettið. Það mun bragðast betur og er mýkra undir tönn en beitukóngurinn.

Hjörtur Gíslason, Morgunblaðið, 24 ágúst 2005


Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Genial post and this post helped me alot in my college assignement. Say thank you you as your information.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap