Kántrý frændi minn
Ég var í ættfræðigrúski áðan og komst þá að þeirri mikilvægu staðreynd að Hallbjörn Hjartarson er frændi minn. Og það nokkuð meira en almennt gerist milli manna sem deila frændskap. Þetta er sannkallaður skyldleikafrændskapur og erfðafræðilegt kraftaverk, enda við báðir mjög svipaðir. Afi minn, Ingimar Einarsson og Hallbjörn voru hvorki meira né minna en fjórmenningar og hafiði það. Þetta þýðir líka það, ef ég reikna rétt, að Linda sem er að vinna með mér og hann Jónas pabbi minn eru fimmmenningar. Pabbi lindu var bróðir Hallbjarnar.
Síðan ég kom á Skagaströnd í fyrsta skipti fyrir einu ári hef ég oft nefnt það að ég vilji taka við Kántrýbæ og útvarpinu. Nú hreinlega verð ég bara að gera það enda maðurinn svo gott sem faðir minn.
Kveðja, Bjarni
Ps. Myndina fann ég á erlendri síðu. Á myndinni með frænda eru einhverjir áttavilltir vesalingar.
Ummæli