Hagsmunasamtökin

Fékk póst frá Hagsmunasamtökum heimilanna og langaði til að birta hluta úr þeim pósti:

Ríkisstjórnin kynnti í gær umfangsmiklar aðgerðir vegna "skuldavanda heimilanna" (er í raun innheimtuvandi fjármálafyrirtækja).

Hagsmunasamtök heimilanna fagna mörgu sem þar kemur fram, en taka skýrt fram að þessar aðgerðir, sem eru skref í rétta átt, eru á engan hátt fullnægjandi til að lina þjáningar, bæta það tjón og forsendubrest sem heimili landsins urðu fyrir vegna fjárglæfra stjórnenda fjármálafyrirtækja, meingallaðrar efnahagsstjórnar og eftirlits. Ekkert í aðgerðum þriggja ríkisstjórna hefur falið í sér neitt til að leiðrétta óréttláta og stökkbreytta hækkun höfuðstóls lána heimilanna. Vandséð er hvernig þessar aðgerðir leiði til sátta í samfélaginu eða enduruppbyggingar hagkerfisins.

Afskaplega vel orðað allt saman og pent. Látum ekki endalaust troða á okkur, skráið ykkur í samtökin.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap