Belís



Nú er búið að bera í hús nýja bæklinginn frá Belís Heilsuvörum. Um er að ræða stórfenglega lesningu og úrvalið er ótrúlega gott. Ég hef verið mikill aðdándi þessara bæklinga og blóta því oft að vera ekki fjáðari þegar þeir detta inn um lúguna. Ég tók saman brot af því besta.

Á forsíðunni er "hagnýt" leður handtaska. Hugsið ykkur, hagnýt taska, hvað hef ég verið að vesenast með... óhagnýtar töskur hingað til?

Eyrnahreinsitæki og stíflu-gufusprautari til að setja að vitum sér og losa stíflur. Masterpís.

Ef þú hefur gaman að lesa bækur sitjandi við borð, kauptu þér þá stillanlegt lesborð. Einnig þægilegt við að ráða krossgátur.

Stifti til að bera á gleraugu, eyðir rispum. Bíddu hvað kemur í staðinn?

Byltingarkenndur snúnings- sætispúði í bíla. Hver hefur ekki átt erfitt með að fara inn og útúr bílnum? Á myndinni er ung kona. Það þurfa allir á þessu að halda.

Sindrandi segularmband með 1200+ Gauss krafti. Ekki fyrir fólk með gangráð. Vá kaupa núna.

Gigaman krem fyrir karlmenn. Stækkar liminn, eykur úthald. Ekki spurning, hlýtur að innihalda Aloavera eða Guarana þó það standi ekki.

Táafréttari með silikoni til að rétta tærnar þegar þær eru beyglaðar eftir að vera í þröngum skóm.

Herrar mínir og frúr, nú veit ég ekki hvort þið hafið lesið þennan bækling en ef svo er ekki, þá trúið mér, þetta er ekkert bull í mér. Upp með veskið og missið ekki af þessu dóti. Að lokum vil ég setja inn auglýsinguna fyrir uppáhaldsvöruna mína: grenningarbuxur!!

Grenningarbuxurnar eru gerðar úr mjúku vel ofnu næloni og elestani, sem gera líkama þinn grannan og spengilegan.
Þóhnapparnir, maginn, mjaðmirnar og lærin fá auka stuðning sem gefur líkama þínum betri vöxt.
Stórkostlegur vöxtur er útkoman. Grenningarbuxurnar falla vel að líkamanum og sjást ekki jafnvel undir aðskornum fötum.
Teygjuþræðirnir nudda húðina sem eykur blóðrásina, kemur hreyfingu á úrgangsefni og fitu sem hreinsast út úr líkamanum og þú grennist.
Við hvert skref og hreyfingu verður líkami þinn fallegri, stinnari og grennri. Þú færð 2 buxur.Ein er drapplituð og önnur er svört.

Guð geymi ykkur, Bjarni

Ummæli

Halldór sagði…
Eru grenningarbuxurnar svona one size fits all, var að spá í fá mér svona.
Bjarni sagði…
Halldór, ég mæli með að þú hringir í Ásgerði Halldórsdóttur hjá Belís wondervare á Höfn í Hornafirði. Það voru ábyggilega eftir einar buxur í medium masculine.

Kveðja, Subbi

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap