Suðurnes og fleira

Við fjölskyldan skelltum okkur suður um síðustu helgi og vorum til húsa í íbúð á gamla kanavellinum. Höfðum það fínt, fullorðna fólkið tæmdi veskin og allir fengu nóg að éta, KFC, Domino´s, Metro og líkamarnir því nærðir fyrir næstu mánuði. Einnig náði ég mér í skemmtilegan kvefskít þarna í sollinum og ligg núna heima. Því læt ég þetta gott heita í bili en á orðið mikið af myndum til að setja inn þegar betur liggur á mér.

Áfram Ísland, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Þú hefur ábyggilega fengið eitthvern djöful í þig á þessum veitingastöðum.

Verð þó að segja að við stoppum ennþá á mac donalds í svíþjóð þótt að skömm sé að segja frá því. Þeir hafa reyndar sett upp Max hamborgarastað þarna i mollinu i Nordby þannig að það er hörð samkeppni á landamærunum.

Batni þér sem fyrst
með kveðju frå Norge
RFS og HB
Bjarni sagði…
Já sæl verið þið. Pabbi dregur mig alltaf á Max þegar ég er þarna úti og verð ég að segja að maður étur það með aðeins betri samvisku.

Kveðja, Bjarni

Ps. Ekki þarf maður allavega að hafa áhyggjur af McDo hérna heima

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap