Skagfirskt uppgjör í sveifluheiminum

„Ég er að fara að leggja fram kæru vegna manndrápstilraunar,“ sagði sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýrsson við DV.is. Söngvarinn Eyjólfur Kristjánsson reyndi að stinga Geirmund í húsakynnum Kaupfélags Skagfirðinga í dag. Þeir áttu að gera upp mál sín í útvarpsþættinum Skagfirsk sveifla á útvarpsstöðinni FM-Brokk í dag. Eyjólfur hafi mætt með rafbyssu, hníf, dobermanhund og hárgræðikrem í viðtalið og réðst á Geirmund sem náði að verjast með skúringarmoppu.

Geirmundur sagðist ekkert vilja tjá sig annars um málið við fjölmiðla.

Eyjólfur mætti á undan Geirmundi og beið í anddyri Kaupfélagsins. Þar eru venjulega margir starfsmenn en þessa dagana er verið að gera upp gólfið og voru því aðeins iðnaðarmenn í húsinu.

Þegar Geirmundur mætti svo á svæðið „sprakk allt í loft upp“ eins og Þórólfur kaupfélagsstjóri orðaði það við DV. Handlögmál þeirra stóðu yfir mjög stutt samkvæmt heimildum DV og dró Eyjólfur þá upp hníf sem að Geirmundur varðist með skúringamoppu.

Það var síðan Þórólfur sem sá til þess að ekki fór verr. „Þeir voru bara að koma til að sættast og það sprakk allt í loft upp. Þetta leystist síðan upp og Eyjólfur fór áður en löggan kom,“ segir Þórólfur, annar stjórnenda Skagfirksrar sveiflu.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap