Saga

Í veikindum mínum var ég að fara í gegnum gömul gögn og sortera svo ég geti farið að strauja tölvuna mína. Þá rakst ég á sögu sem ég hafði skrifað 21.10.2008. Ætli sé því ekki hægt að segja að hún sé frá upphafi þessarar svokölluðu kreppu. Ekki man ég nú hvert ég var að fara með þessu eða hvernig þetta átti að enda. En svona hljóðar sagan:

Jæja gullin mín, nú sverfur aldeilis til káls. Í nótt dreymdi mig að ég og Pétur Blöndal vorum að síga eftir bláberjum í þverhníptum hömrum. Staðurinn var eyðifjörður einhversstaðar á Ströndum. Þar bjuggum við samyrkjubúi, óháðir gengisvísitölum og ómeðvitaðir um óraunverleikann. Við bjuggum þarna tveir ásamt þrífættum hundi, höltum hrút og vinnukonu sem þjáðist af hamborger- heilkennum en gat samt sinnt helstu skyldum vinnukonu, hún barði hey, strokkaði smér og veitti okkur Pétri andlega og holdlega næringu. Af henni stafaði hlýja og væntumþykja hinnar feitu og fáfróðu íslensku kvenkindar.

Daglega gengum við saman í mesta bróðerni til helstu verka. Söfnuðum eggjum, tíndum upp fisk og sigum eftir aðalbláberjum. Einnig ráku á land verðlaus hlutabréf sem við þurrkuðum á fjörusteinunum í heitri sumarsólinni og hugðumst nota til eldiviðar þegar veisla sumarsins liði undir lok. Pétur stikaði um stoltur og teinréttur, féll þó stundum um þúfur og ójöfnur, enda sjón hans ekki upp á marga fiska, búinn að týna gleraugunum í öllu aksjóninu. Hann var iðulega klæddur selskinnsmussu, með bindi og ber að neðan, en í bússum. Hann var með róbótahendur frá Össuri hf., þið vitið, þessar sem henta best til sjálfsþurftarbúskapar. Undurfagur var hann með hárið staðgreitt ofan í augun og raðgreislu í hnakkanum. Gegnum þykkt hárið blikaði þó í falleg augun sem af stafaði geislum ungæðis og óheftrar þroskahömlunar. Frjálshyggjan kom upp með morgunsólinni og sundraðist í dögginni á lyngvaxinni hlíðinni fyrir ofan bæinn. Á kvöldin var hún étin upp af næturfrostinu þegar að rauð kveldsólin hafði vikið fyrir myrkrinu og við kúrðum okkur saman undir feld og horfðum á stjörnu og tungl út um þakljórann.


Kveðja, Bjarni

Ummæli

fofofo sagði…
ég varð glaður í sálinni við að lesa þetta
ingi rafn sagði…
Þetta er gott lesefni.
Nafnlaus sagði…
falleg lesning....
Kv. mágkonan í Norge
Bjarni sagði…
Já takk fyrir kommentin. Ég kannski held áfram með þessa fantasíu við tækifæri.

Kveðja, Bjarni

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap