Furðufiskur
Línubáturinn Hildur á Skagaströnd fékk fisk af tegundinni stóri bramafiskur á snúruna hjá sér í vikunni. Að sjálfsögðu var ég kallaður til og fann út eftir miklar vangaveltur að um fisk væri að ræða. Það ruglaði mig reyndar pínulítið að hann væri ekki með sósu og kartöflum.
Fiskar af þessari tegund veiddust fyrst svo ég viti við Vestmanneyjar 1953 og finnast sem "flækingar" við suðurströndina. Við vitum ekki til þess að þeir hafi veiðst hérna norðanlands en við munum reyna að komast að því. Algengastur er þessi fiskur við suðvestur Afríku og inn á Miðjarðarhaf og er algengur matfiskur á Spáni og í Portúgal.
Til gamans má að lokum geta að á latnesku heitir þessi skepna Brama brama sem mér finnst allt að því ljóðrænt
Kveðja, Bjarni

Ummæli