Nóg að gera

Jæja góða kvöldið.

Þá er komið að því að ég reyni að drulla á blað einhverjum tíðindum. Í augnablikinu sit ég við eldhúsborðið og er alveg örþreyttur eftir erilsaman dag. Guðrún er í Reykjavík og við drengirnir hennar bara þrír heima. Það hefur að sjálfsögðu gengið vel og við elduðum saman alveg ljómandi góðar kjötbollur. Eins og sjá má á Mynd 1 (guð hvað þetta er fræðilegt) þá vorum við piltarnir í stuði í eldhúsinu.


Mynd 1. Kjötbollusnillingarnir!

Ég var held ég eitthvað að tala um heimilisiðnað í einhverju blogginu. Ég ætla nú ekki að fara að halda því fram að við séum orðin sjálfum okkur næg varðandi drasl til að éta eða klæða okkur í, en við höfum verið að bralla ýmislegt. Drengirnir hafa tekið þátt í þessu, smíðað búðing, þæft ull og prjónað. Guðrún prjónar, þæfir, bræðir vax í kerti og ég dunda svona meira í matvælum. Ég drullaði saman 10 kg. af alveg ofboðslega feitum sperlum sem ég er hrikalega stoltur af og ég get ekki beðið eftir að éta þessar elskur.


Mynd 2. Faðir sperðill (Papa Sperlos)

Aðrir hápunktar á lífinu eru alveg ótrúlegir selarannsóknatúrar í Málmey og Strandir (Mynd 3.). Ég vil benda ykkur á albúmið um selarannsóknir þar sem þið getið séð æsispennandi myndir af spendýrum á 2 fótum skoða spikfeit spendýr í fjörum landsins.


Mynd 3. Það er sérstakt að snæða nesti innan um útselskópa. Þessi ákveðni kópur gaf frá sér lystaukandi prumphljóð!

Jæja nú er ég að verða stjarfur á þessu rugli og vil að lokum segja að ég átti yndislega afmælishelgi í Mývó. Ég og Guðrún vorum bara ein heima í Brekku, gáfum lömbum hey, hundum mat og yfirfóðruðum sjálf okkur, mest með sykri. Kíktum í göngutúr á laugardaginn og náðum okkur í smá jólamat. Ekki úr vegi að enda þetta með tveimur myndum af okkur turtildúfunum rölta um hraun í leit rjúpum.





Kveðjur, Bjarni

Ps. Bæti við einni flottri mynd frá réttarhelginni í haust.


Mynd 4. Þeim fannst nú ekki leiðinlegt af fá að vera á bílnum á leiðinni heim í Brekku með féið.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Takk fyrir þessa grein Bjarni, hún er afar fræðandi og hefur mikið skemmtanagildi :) Bið að heilsa í bæinn.
Sigga Júlla

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap