Líter af kraftasterum og testósterón


Jæja góða kvöldið

Nú skellti kallinn í pott þvílíkri djöfullsins kjötsúpu að eldhúsinnréttingin hreinlega nötraði þegar suðan kom upp á þessu helvíti.

Slatti af kjöti (sennilega 1,5 kg), gusa af vatni, blaðlaukur, gulur laukur, haframjöl, hrísgrjón, gulrætur, hvítkál, salt, smá svartur pipar, kartöflur, steinselja, rófur og ég veit ekki hvað. Ég svona nánast skellti þessu saman í einn graut en beið þó með hvítkálið, kartöflurnar og rófurnar þar til fór að styttast í þessu.

Mér varð svo heitt í hamsi við að éta þetta að ég reif mig úr skyrtunni og var ber að ofan. Drengirnir kipptu sér nú ekki mikið upp við það en Guðrún ljómaði að sjálfsögðu við að sjá hálfnakið dýrið sitja við eldhúsborðið og moka í sig prótínum og fitu. AAAAAARRRRRRRRRRRGGGGGGGG!!!!

Verði mér að góðu, Bjarni

Ps. Myndin kom upp þegar ég googlaði: masculine meat soup. Þetta gæti bara verið ég sjálfur.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
ohhh kjötsúpa...mmmm
Bið að heilsa litlu sys;)
Kv. Sigga Júlla

p.s. Tim biður að heilsa
Bjarni sagði…
Jamm ég skila því og bið að heilsa Tim.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap