Eitt af markmiðum helgarinnar var..........

að blogga!

Það tókst nú ekki en ég á orðið slatta af myndum með tilheyrandi sögum sem ég þarf að fara að setja inn. Mikið hefur verið að gera í heimilisiðnaðnum og við öll lagt okkar af mörkum við fara nett út úr kreppunni og þarf ég að útskýra það betur.

Annars góð helgi. Fór í rjúpu í landið hjá tengdó á laugardaginn og hafði þrjár. Ekki sá ég mikið af rjúpu en bætti einu Hjaltadalsfjallinu við í Labbauppáfjöll-listann minn. Í Hjaltadal hef ég nú gengið á: Elliða, Hólabyrðu, Þríhyrninga, Kálfstaðahnjúk, Skúfstaðafjall og ætli þetta síðasta heiti ekki Viðvíkurfjall. Nú á ég eftir: Nautabúshnjúk, Hafrafell og kannski Grasárdalshnjúk eða Reykjahnjúk og jú Kolbeinsstaðahnjúka. En jæja skrifa betri pistil hér inn í kvöld eða á morgun og hendi inn myndum.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
...maður bíður bara eftir næsta pistli...
Kv. Sigga Júlla

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Blogg um ekkert

Negri í Þistilfirði