N1N1H1N3J3
Mér finnst alger óþarfi að bíða með kúkinn í brókunum eftir að fá þessa blessuðu svínaflensu og stefni ótrauður að því að fá hana sem fyrst, klára þetta af. Ég hef leitað upplýsinga á vef landlæknisembættisins en þar er allt í niðurníðslu og litlar upplýsingar að hafa um hvernig sé best að ná sér í þetta. Út frá upplýsingum um hvernig sé best að forðast flensuna hef ég samt útbúið plan sem ég vil biðja alla sem vilja fá flensuna að fara eftir.
1.Hnerrið ekki í handþurrkur eða olnbogabót heldur beint upp í loft eða í átt að næsta manni.
2.Ef þið eigið notaðar handþurrkur, hendið þeim þá að fólki eða á næstu borð. Safnið notuðum handþurrkum og snýtibréfum frá öðru fólki og geymið í vasa og skiptið jafnvel við fólk á bréfum
3.Stundið ekki handþvott, sérstaklega ekki með sápu
4.Ef þú finnur til flensueinkenna þá ekki leita læknis. Farður frekar í heimsókn
5.Ef þú finnur til einkenna skaltu ávallt halda þig nálægt fólki, innan við 1 meter
6.Ef þú finnur til einkenna skaltu vera á bölvuðum þeytingi og helst ekki heima hjá þér í minnst viku. Stundið samkomur og gleðskap
7.Heilsaðu ávallt fólki með handabandi, faðmlagi og kossum. Líka þeim sem þú þekkir ekki neitt
8.Nuddið augu, nef og munn í sífellu með skítugum höndum
9.Snertið ávallt (má sleikja) hurðarhúna, handrið og handföng á almenningsklósettum og almenningsfaratækjum.
Ef við leggjumst öll á eitt og förum eftir þessum aðferðum mínum þá verður þessi andskoti yfirstaðinn á no time.
Greetings from Skagaströnd, Bjarni
Ummæli