Besti matur í heimi?

Héðan af norðvesturhorninu er allt ljómandi gott að frétta. Þó hafa veður verið fremur válind og tíðarfar ekki gefið mikið tilefni til útivista né golfiðkunar, en ég hef fulla trú á að þetta muni lagast með vetrinum. Nú hef ég hafið störf að nýju og það af fullum krafti og mun það sjálfsagt endurspeglast í hækkandi vísitölum og batnandi þjóðarhag fljótlega.

Fjölskyldulífið gengur sinn vana gang og drengirnir byrjaðir á fullu í skólanum. Guðrún er í smá sumarfríi og hefur verið heima síðustu daga. Daglega hef ég sett henni fyrir ýmis verkefni, fara í berjamó, þrífa slotið, greiða drengjunum og þurrka munnvikin, hjálpa þeim að læra, baka vínabrauð, vera prúð í fasi og ekki ergja mig þegar ég kem heim. Þetta hefur allt gengið eftir.

Um síðustu helgi fórum við öll í réttir í Mývatnssveit og vakti það mikla lukku hjá drengjunum sem slógu öll met í dugnaði við smalamennsku og fjárdrátt. Allir vöknuðu kl. 06:00, fóru austur á Dal og piltarnir gengu svo með safninu niður að rétt á meðan við gamla fólkið sátum inni í bíl. Eftir að hafa dregið féið í dilkinn af miklum djöfulmóð var það svo rekið á bíl og keyrt heim. Að sjálfsögðu vildu strákarnir standa aftur á palli og vorum við gamla fólkið að krókna á leiðinni.

Í gær sá ég svo ljósið í myrkrinu. Sigin grásleppa. Við í vinnunni ákváðum að snæða hluta af sýnabankanum okkar og á matseðlinum var sigin grásleppa og kæst tindabikkja. Við reyndar fokkuðum upp tindabikkjunni og suðum hana í of miklu vatni og kannski aðeins of lengi. Hún varð gjörsamlega bragðlaus, sem var mikil sorg. En grásleppan, nammi nammi namm........ þetta þarf maður að éta oftar. Í gærkvöldi átum við svo sperðla með jafningi, grænum baunum og rauðkáli. Geta dagarnir orðið betri?

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Veðurblíða og töluverð sól

Negri í Þistilfirði